
Kiara Sky Professional Nails var stofnað fyrir 15 árum í Kaliforníu. Með ástríðu fyrir litum og heilt yfir glæsilegum nöglum, þá leggur Kiara Sky mikið upp úr því að koma með nýjar og betrumbættar vörur í nagla heiminn. Því finnst þeim mikilvægt að framleiða vörur sem eru einfaldar í notkun, gæðavörur fyrir alla naglafræðinga í heiminum.
Kiara Sky vörurnar eru fáanlegar í yfir 45 löndum.
Vörurnar frá Kiara Sky eru cruelty free (fegurð án illsku)
Kiara Sky elskar að blanda saman og búa til nýja liti og tengjast fylgendum sínum í gegnum samfélagsmiðla! Þeirra markmið er að deila faglegri þekkingu, halda áfram stöðugri menntun og að veita framtíðinni innblástur með hæfileikaríkri naglalist.